Kvikindi
köstuðu mér í hylinn
Berjamór berja augum berja þig,
aftur augum.
Draumur minn í efstu hillu.
Tómatlituð tunga lipur,
læðir orðum læðist inn í mig.
Þögnum þakin heyrum eyrun.
Heyra fátt, heyra lítið, ekki neitt.
Og kossar þínir innsigluðu orðin.
Viðlag:
Kríthvít brjóst þín, kirsuberin.
Eplagrænir augasteinar.
Fjólubláar flauels-kinnar,
blásvart hár þitt breiðir yfir;
barnæskuna mína.
Gulur hnöttur á himni blindar
keyrir allt á kaf í birtu.
Allir fuglar þurfa að fljúga.
Líka þú, ég læt það ekki,
á mig fá.
Viðlag...
Berjamór berja augum berja þig,
aftur augum.
Draumur minn í efstu hillu.
Tómatlituð tunga lipur,
læðir orðum læðist inn í mig.
Þögnum þakin heyrum eyrun.
Heyra fátt, heyra lítið, ekki neitt.
Og kossar þínir innsigluðu orðin.
Viðlag:
Kríthvít brjóst þín, kirsuberin.
Eplagrænir augasteinar.
Fjólubláar flauels-kinnar,
blásvart hár þitt breiðir yfir;
barnæskuna mína.
Gulur hnöttur á himni blindar
keyrir allt á kaf í birtu.
Allir fuglar þurfa að fljúga.
Líka þú, ég læt það ekki,
á mig fá.
Viðlag...
Losowe piosenki:
My Hotel Year
How Blue Can You Get
Breathing
Cash Money Roll
Ape Hanger
Yo Combati La Ley